
Icelandair efnir til námskeiða, Njótið þess að fljúga, fyrir fólk sem vill takast á við flugfælni.
Námskeiðin eru 12 klukkustundir sem skiptast á 4 kvöld frá klukkan 17:00-20:00 og lýkur með flugferð fram og til baka á einn af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.
Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur og Páll Stefánsson flugstjóri leiða námskeiðin.
Álfheiður kennir aðferðir til að vinna bug á kvíða og fælni og Páll fer í gegnum öll tæknileg atriði flugvélanna.
Námskeiðið verður haldið á Hótel Reykjavík Natura við Reykjavíkurflugvöll.